Það er alltaf gaman á haustin að fylgjast með fyrstu skefum tryppanna í tamningu. Við erum í heildina ánægð með tryppahópinn og höfum fulla trú á að innanum leynist framtíðargæðingar !
Nú þegar farið er að hausta, eins og sjá má á bæði hestum og gróðri öllum, stendur til að taka skurk í frumtamningur á ungu hrossunum hér á bæ. Þau eru orðin allnokkur er bíða og verður spennandi að sjá hvernig úr rætist.
Seinni Valkyrjuferðin okkar var farin helgina 24.-26. Júlí. Við fengum að þessu sinni mjög fjölbreytt íslenskt veðurfar, frá glaða sólskini til hagéls og allt þar á milli.
Við lögðum upp frá Kálfholti sem fyrr og fórum fyrsta daginn að Flagbjarnarholti. Á öðrum degi fórum við „nýja leið“. Frá Flagbjarnarholti yfir Minnivallarlækinn hjá Vindási og yfir að Hvammi í fylgd Valmundar bónda . Frá Hvammi fórum við fyrir Skarðsfjall ,að Skarði og yfir í Réttarnes og þaðan í Hrólfstaðahelli. Frábær leið og mjög gott reiðfæri, utan hraungjótunnar er fararstjórinn lenti í
Við enduðum síðan ferðina á Botnum við Árbæjarveg á sunnudeginum og þaðan hélt hver til síns heima ríðandi eða akandi.
Gestir þessarar Valkyrjuferðar fóru á kostum í söng, sögum og spjalli ýmsu og vorum við mjög ánægð með hópinn enda frábærar konur á ferð.
Takk fyrir samveruna !