Hestar heilla
Langar þig að ná árangri í þjálfun og keppni?
Allir hestamenn vita hversu mikilvægt er að þroska stöðugt og þróa reiðmennsku sína til að ná árangri í hestamennsku. Besta leiðin til að ná þessum árangri er að komast í kynni við mjög góða og vel þjálfaða hesta og fá um leið faglega tilsögn.
Á hrossaræktarbúinu Kálfholti, sem er um 70 km frá Reykjavík, er boðið upp á mjög markvisst námskeið, sem er ætlað fólki er hefur mikla reynslu af útreiðum og umgengni við hross.
Kennt verður á mjög góða og vel tamda hesta, sem eru tilbúnir í keppni, sem og reynda keppnishesta. Kennslan er að mestu einkatímar og unnið verður með: Leiðtogavinnu, ásetu og stjórnunaræfingar, gangtegundir, upphitun og undirbúning fyrir keppni.
Aðalkennari verður Ísleifur Jónasson í Kálfholti, sem hefur mikla reynslu af þjálfun og keppni. Hans besti árangur er án efa sigur á Landsmóti 2008 í B-flokki á Röðli frá Kálfholti. Ísleifur lauk reiðkennaraprófi frá Hólaskóla 2007 og hefur náð frábærum árangri sem slíkur.
Auk daglegrar kennslu er farið í útreiðartúra í nágrenni Kálfholts, fræðst um íslenska hestinn og hans náttúrulega umhverfi, farið í skoðunarferð með suðurströndinni og á kvöldin eru ýmist kvöldvökur að íslenskum sið eða farið í heitu pottana og slakað á.
Kálfholt er rótgróið hrossaræktarbú á Suðurlandi, sem hefur skilað mjög góðum hestum inn í íslenska hrossarækt og hafa margir keppnishestar komið þaðan. Ber þar fyrstan að nefna Röðul frá Kálfholti er vann B-flokk á Landsmóti 2008 og Kjarnorku, er var í tvennum úrslitum á sama móti.
Allar nánari upplýsingar um verð, kennsluáætlun, dagskrá og dagsetningar eru veittar í gegnum netfangið kalfholt@kalfholt.is
Hlökkum til að sjá ykkur!
Sími: 4875176 Eyrún og Steingrímur
