Tamningar


ENGLISH

FORSÍÐA

MYNDIR

HROSSARÆKT

TAMNINGAR

HESTAFERÐIR

ÞJÓNUSTA

FRÉTTIR

Í Kálfholti er starfrækt tamingastöð allt árið. Þar eru í þjálfun og tamningu bæði heimahross og önnur utanaðkomandi. Bæði er hægt að koma með hross í frumtamningu en einnig er boðið upp á framhaldsþjálfun, sem gæti þá endað með keppni, sýningu og/eða sölu. Búið er í samstarfi við önnur hrossaræktarbú á svæðinu og stendur að reglulegum sölusýningum í Hestheimum. Það eru því ýmsir möguleikar í boði við að koma hrossum á framfæri.

Tamningastöðin í Kálfholti rúmar allt að sextíu hross í rúmgóðum stíum.  Tamningaaðstaðan er mjög góð, inniaðstaða, tvö hringgerði, stór gerði, hringvöllur og einning eru góðar útreiðarleiðir. Þar starfa að jafnaði 3-4 tamningamenn við þjálfun og umhirðu hrossanna.

Tamning, þjálfun, sala í Hrossaræktarbúinu Kálfholti

  • Ísleifur Jónasson : 487 5016 / 862 9301
  • Steingrímur Jónsson : 487 5176 / 892 5176

Netföng:

 



   
    Til baka