Þjónusta


ENGLISH

FORSÍÐA

MYNDIR

HROSSARÆKT

TAMNINGAR

HESTAFERÐIR

ÞJÓNUSTA

FRÉTTIR

Í Kálfholti er boðið uppá eftirtalda þjónustu.

Hagaganga
Kálfholt er stór og grasgefin jörð sem hentar vel fyrir hrossabeit. Beitarhólfin eru skjólgóð með gott aðgengi að vatni.  Hrossin geta verið í hagagöngu allt árið og þá á gjöf yfir vetrartímann.

Stóðhestauppeldi
Auk hagagöngu getum við tekið stóðhesta í uppeldi árið um kring.  Þá er einnig möguleiki á að fóðra stóðhesta inni að vetrinum.

Næturhólf fyrir hestahópa
Á vorin og sumrin, þegar hestafólk er á ferð, bjóðum við upp á áningahólf fyrir ferðahross. Einnig er velkomið að koma við í Kálfholti og hafa hestaskipti.

Járningar
Ísleifur Jónasson og Steingrímur Jónsson sem báðir eru félagar í FT hafa áralanga reynslu af járningum.  Þeir  taka að sér járningar í Kálfholti, eða koma á staðinn ef um stærri hópa er að ræða.

Umboðssala hrossa
Í Kálfholti eru jafnan utanaðkomandi hross sem og heimahross í tamningu og þjálfun.  Gjarnan koma viðskiptavinir okkar með hross í "söluþjálfun" og er því yfirleitt nóg af söluhrossum í þjálfun. Þá er búið í samvinnu við önnur hrossaræktarbú á svæðinu og eru sölusýningar haldnar í Hestheimum í Ásahreppi. Ef draumahesturinn er ekki til í húsinu hjá okkur getum við aðstoðað við leitina.

Kennsla

Í Kálfholti tekur Ísleifur Jónasson að sér kennslu, en hann lauk reiðkennaraprófi frá Hólaskóla vorið 2007.
Í Kálfholti er góð inniaðstaða er hentar vel til kennslu fyrir smærri hópa eða einstaklinga. 



   
    Til baka